Ágúst uppfærslur MS

Ágúst uppfærslur MS

Windows Update er enn að færa okkur góðgæti til að splæsa í stýrikerfin okkar.

Í þessum mánuði eru sex af níu uppfærslum merktar „critical“ og af þessum sex eru fimm merktar „Exploitability Index 1“ sem þýðir að á næstu 30 dögum munu hakkarar mjög sennilega sleppa einhverjum hugbúnaði út sem nýtir sér þessar öryggisholur. Því borgar sig, eins og alltaf, að fylla uppí sprungurnar.